Embætti landlæknis auglýst laust til umsóknar

Birgir Jakobsson, núverandi landlæknir.
Birgir Jakobsson, núverandi landlæknir. mbl.is/Golli

Embætti landlæknis hefur verið auglýst laust til umsóknar, en skipað verður í embættið frá 1. apríl á næsta ári þegar Birgir Jakobsson, núverandi landlæknir, lætur af störfum vegna aldurs. Umsóknafrestur er til 20. desember næstkomandi.

Heilbrigðisráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fengnu mati nefndar. Embættið heyrir undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra.

Umsækjendur skulu hafa sérfræðimenntun í læknisfræði, þekkingu á sviði lýðheilsu og víðtæka reynslu eða menntun á sviði stjórnunar. Leitað er að einstaklingi með samskipta- og leiðtogahæfileika og góða þekkingu og reynslu af rekstri og stefnumótun. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af stjórnunarstörfum á sviði heilbrigðisþjónustu.

Landlæknir ber ábyrgð á því að embættið starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Hann ber jafnframt ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma embættisins sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. 

Embætti landlæknis hefur verið auglýst laust til umsóknar.
Embætti landlæknis hefur verið auglýst laust til umsóknar. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Í auglýsingunni er talið upp hvert hlutverk landlæknis sé, meðal annars:

  • veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, fagfólki og almenningi ráðgjöf og fræðslu um málefni á verksviði embættisins,
  • annast forvarna- og heilsueflingarverkefni,
  • efla lýðheilsustarf í samvinnu við aðra sem að þeim málum starfa og styðja við menntun á sviði lýðheilsu,
  • vinna að gæðaþróun,
  • hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum,
  • hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna,
  • veita starfsleyfi til einstaklinga sem uppfylla skilyrði laga og reglugerða til notkunar starfsheita löggiltra heilbrigðisstétta,
  • stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í samræmi við kröfur heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma,
  • sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu,
  • bera ábyrgð á framkvæmd sóttvarna, sbr. sóttvarnalög,
  • safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu,
  • meta reglulega árangur af lýðheilsustarfi og bera hann saman við sett markmið,
  • stuðla að rannsóknum á starfssviðum embættisins,
  • sinna öðrum verkefnum sem honum eru falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun ráðherra.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert