„Hraðinn í göngunum gífurlegur“

Norðfjarðargöng.
Norðfjarðargöng. Ljósmynd/Vegagerðin

Vinnu við Norðfjarðargöngin er ekki lokið þótt þau hafi verið opnuð fyrir umferð á laugardaginn. Næstu daga verður unnið við að steypa gólf í neyðarrýmum en verktakar eru í vandræðum í göngunum vegna umferðarhraðans sem þar er. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Þar eru ökumenn beðnir að hægja á sér og virða hraðatakmarkanir. Göngin séu það mikil samgöngubót og spari seinfarinn fjallveg og því ættu allir að hafa tíma til að fara örlítið hægar í gegn.

Það er þó eftir nokkur vinna í göngunum að sögn Vegagerðarinnar, og verður unnið í þeim a.m.k. næstu tvær vikur. Í dag og næstu daga á til dæmis að steypa gólf í neyðarrými. Menn sem standi í því verki séu í erfiðleikum vegna umferðarhraða.

Fulltrúi verktaka lýsir því þannig: „Hraðinn í göngunum er gífurlegur. Alverstir eru flutningabílarnir. Þeir keyra flestir því miður á útslættinum fram hjá strákunum.”

Og bætir við: „Að sjálfsögðu hafa menn sett upp merkingar en áhrif þeirra virðast lítil. Við viljum höfða til skynsemi manna um að aka hægar þar sem unnið er. Við vildum ekki fresta opnun ganganna þó að við vissum um þessa vinnu, vitandi um einhverja erfiðleika. En á móti þurfum við umburðarlyndi bílstjóra þó að þeir þurfi að fara aðeins hægar. Göngin flýta mjög ferð vöruflutningabíla þó að þeir slái aðeins af. Ef hraðinn minnkar ekki erum við neyddir til þess að huga að tímabundnum lokunum til að vernda starfsmenn, en ég vona að ekki komi til þess.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert