Búið að slökkva eldinn

Eldur kom upp í virkjunni fyrr í dag.
Eldur kom upp í virkjunni fyrr í dag. mbl.is/Hanna

Búið er að slökkva eld sem kviknaði í stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar fyrir hádegi í dag. Eldurinn kom upp í loftræstibúnaði virkjunarinnar. Reykkafarar eru nú að leita að glóðum sem kunna að leynast milli þilja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orku náttúrunnar, eiganda og rekstraraðila virkjunarinnar.

Segir þar að tjón á framleiðslubúnaði virkjunarinnar virðist ekki verulegt en verið er að kanna ástand húsnæðisins. Engan sakaði og virðast reglulegar æfingar starfsfólks með Brunavörnum Árnessýslu og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafa skilað sér í markvissum viðbrögðum.

Ekki er vitað um upptök eldsins en hann logaði í um tvo tíma í loftræstibúnaði og þaki miðhluta stöðvarhússins. Tvær af sjö aflvélum virkjunarinnar slógu út og slökkt var á varmastöðinni í öryggisskyni. Ekki er vitað á þessari stundu hvenær búnaðurinn verður ræstur að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert