Styrkja færeyska leikskólakennara í verkfalli

Þórshöfn í Færeyjum.
Þórshöfn í Færeyjum. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Leikskólakennarar í Færeyjum, sem eru í verkfalli, fá tíu milljónir króna í styrk frá vinnudeilusjóði Kennarasambands Íslands. Færeyskir leikskólakennarar hafa verið í verkbanni og verkfalli síðustu fimm vikurnar. Engin lausn virðist í sjónmáli og kjarasamningur ekki á borðinu. Þetta kemur fram á vef KÍ

„Við viljum að sjálfsögðu leggja okkar af mörkum og aðstoða kollega okkar í Færeyjum. Ég er viss um að Færeyingar myndu gera það sama fyrir okkur,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, á vefsíðunni

Verkfallið er farið að hafa áhrif á fjárhag félagsmanna. Byrjunarlaun leikskólakennara í Færeyjum eru 406.945 kr. á mánuði. Leikskólakennari með 15 ára starfsreynslu eða meira fær 471.342 kr. í laun á mánuði.

Stjórn Kennarasambands Íslands bar þessa tillögu fram sem vinnudeilusjóður samþykkti.  

Í síðasta mánuði sendi Félag leikskólakennara færeyskum kollegum sínum stuðningsyfirlýsingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert