Lögregla lýsir eftir Páli

Páll Þorsteinsson.
Páll Þorsteinsson. Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Páli Þorsteinssyni, sem er fæddur árið 1943, til heimilis í Árbæ í Reykjavík. Talið er að hann sé klæddur í ljósar buxur, bláa peysu, brúnan síðan leðurjakka og dökka strigaskó með hvítum sóla. Páll, sem er um 173-175 cm á hæð, gæti verið með bláa húfu.

Björg­un­ar­sveit­ir á höfuðborg­ar­svæðinu hafa tekið þátt í leitinni að Páli frá því níu í morgun.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Páls, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir að hafa strax samband við lögreglu í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert