Einn heppinn lottóspilari var með hinn alíslenska þriðja vinning í víkingalottóútdrætti kvöldsins og fær hann 1.476.000 krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur á lotto.is.
Hvorki fyrsti né annar vinningur gengu út og því verður fyrsti vinningur þrefaldur og annar vinningur tvöfaldur í næstu viku.
Einn heppinn miðaeigandi var með allar tölurnar réttar í Jóker og fær 2 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Iceland, Arnarbakka 2-4 í Reykjavík.
Þrír voru með fjórar réttar tölur í Jóker og fær hver þeirra 100.000 krónur. Einn miðinn var keyptur í Kaupfélaginu á Súðavík en hinir tveir eru í áskrift.