Um 140 prúðbúnir gestir mættu í sérstakan hátíðarkvöldverð Karls Gústafs konungs í sænsku konungshöllinni í kvöld til heiðurs íslensku forsetahjónunum, Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu Reid.
Opinber heimsókn forsetans til Svíþjóðar, sem er sú fyrsta sem hann fer til landsins frá því hann var kjörinn sumarið 2016, hófst í hádeginu í dag og stendur fram á föstudag.
Frétt mbl.is: Guðni flutti ávarp á sænsku
Meðal gesta voru opinbera sendinefndin sem fylgdi Guðna og frú til Svíþjóðar, þar á meðal Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og kona hans, Ágústa Johnson. Þá voru fulltrúar menningar og viðskipta einnig á gestalistanum, sem og sænska stjórnin.
Hér má nálgast gestalistann í heild sinni, en meðal kunnuglegra nafna sem þar má finna eru Lars Lagerbäck og Ari Eldjárn.
Kvöldverðurinn var snæddur í glæsilegum sal í höllinni sem er nefndur í höfuðið á Karli XI konungi Svía frá 17. og 18. öld. Á matseðlinum mátti meðal annars finna bleikju-confit, hjartarkjöt og jógúrtís.
Opinbera heimsóknin heldur áfram á morgun og þá munu forsetahjónin meðal annars funda með aðilum úr ferðaþjónustunni, heimsækja Karolinska Instituet í Stokkhólmi og kynna sér vistvænar húsbyggingar í Stokkhólmi.
Forsetinn mun einnig flytja fyrirlestur við stjórnmálafræðideild Stokkhólmsháskóla en frú Eliza heimsækir Barnahús í Stokkhólmi sem ætlað er að veita börnum, sem grunur er um að séu fórnarlömb ofbeldis, öruggt umhverfi á meðan mál þeirra eru á rannsóknarstigi.