Kvikmynd Ísoldar Uggadóttur, Andið eðlilega, var heimsfrumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni í gærkvöldi. Troðfullt var á sýninguna og samkvæmt aðstandendum myndarinnar var henni afar vel tekið.
Ísold, aðalleikarar og framleiðandi myndarinnar ræddu við áhorfendur og svöruðu spurningum úr sal að sýningu lokinni. Kristín Þóra Haraldsdóttir, Patrik Nökkvi Pétursson og Babetida Sadjo eru í aðalhlutverkum.
Andið eðlilega fjallar um hælisleitandann Adja frá Gíneu-Bissá sem belgíska leikkonan Babetida Sadjo leikur og hvernig örlög hennar fléttast saman við örlög íslenskrar konu, Láru, sem Kristín Þóra Haraldsdóttir leikur. Leiðir þeirra liggja saman við vegabréfaskoðun á Keflavíkurflugvelli þar sem Adja er stöðvuð í vegabréfaeftirliti af Láru, sem hefur nýhafið störf á Keflavíkurflugvelli. Þær tengjast óvæntum böndum en með stórt hlutverk fer líka Patrik Nökkvi Pétursson, sem leikur ungan son Láru.
Myndin er fyrsta mynd Ísoldar í fullri lengd og hefur hún hlotið góða dóma.
Segir í dómi Variety að leikarar túlki hlutverk sín vel og að myndin sé dramatísk og raunsæ. Í dómi Screen Daily segir meðal annars að Andið eðlilega „standi fyllilega undir þeim væntingum sem gerðar hafi verið til Ísoldar vegna margverðlaunaðra stuttmynda hennar“.