Þörf fyrir 2.200 nýjar íbúðir á ári

Ungt fólk flytur mun seinna að heiman en áður og …
Ungt fólk flytur mun seinna að heiman en áður og gamalt fólk býr lengur heima. Þetta hefur mikil áhrif á fasteignamarkaðinn. AFP

Íbúðum þyrfti að fjölga um 17 þúsund á árunum 2017-2019 til að mæta uppsöfnuðum skorti og undirliggjandi þörf. Ólíklegt að uppsafnaður skortur á íbúðum frá árinu 2012 hverfi alveg á næstu tveimur árum. Til samanburðar voru um 1.500 íbúðir byggðar árið 2016.

Hversu seint ungt fólk flytur að heiman og eldra fólk flytur á hjúkrunarheimili hefur áhrif á hversu margar íbúðir þarf að byggja. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu hagdeildar Íbúðalánasjóðs.

Í skýrslunni segir að þrátt fyrir aukinn kraft í uppbyggingu íbúða um þessar mundir verði að teljast ólíklegt að uppsafnaður skortur frá árinu 2012 hverfi að fullu á næstu tveimur árum, þótt hann gæti minnkað. Von er á tölum um nýbyggingar og fólksfjölgun fyrir nýliðið ár, sem munu varpa frekara ljósi á stöðuna.

Vilja þau raunverulega flytja að heiman?

„Þá hefur það einnig áhrif á þörf fyrir byggingu nýrra íbúða hversu lengi ungt fólk býr í foreldrahúsum og jafnframt hve seint aldraðir flytja á hjúkrunarheimili. Á undanförnum áratugum hefur skólaganga fólks lengst, fólk fer þar af leiðandi síðar á vinnumarkað og býr lengur í foreldrahúsum.

Vilji fólk að meðaltali flytja 5 árum seinna úr foreldrahúsum árið 2040 en fólk gerði árið 2011 er þörf á um 11.000 nýjum íbúðum á tímabilinu 2017-2019 í stað 17 þúsund. Sú spurning stendur þó eftir hvort fólk vilji raunverulega flytja seinna að heiman en áður eða hvort það neyðist til að búa lengur heima. Hlutfall ungs fólks í foreldrahúsum hefur vissulega aukist undanfarin ár en á sama tíma hefur verið hávær umræða um hversu erfitt það er fyrir ungt fólk að fá húsnæði á viðráðanlegum kjörum,“ segir í skýrslunni.

Það er ekki aðeins ungt fólk sem flytur síðar. Aldraðir búa nú við betri heilsu en áður og haldi sú þróun áfram má ætla að það hafi áhrif á það hvenær fólk flytur að jafnaði á hjúkrunarheimili. Flytji aldraðir að jafnaði fimm árum síðar á hjúkrunarheimili en þeir gerðu árið 2011 er þörf fyrir 3.000 fleiri íbúðir árið 2040. Á móti minnkar þörf á uppbyggingu hjúkrunarheimila.

Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur í hagdeild Íbúðalánasjóðs, segir í tilkynningu að eitt stærsta verkefnið í húsnæðismálum í dag er að tryggja að fjölgun íbúða sé í takt við þörf.

„Þrátt fyrir aukinn kraft í nýbyggingum á síðustu tveimur árum þyrfti jafnvel að eiga sér stað enn meiri fjölgun íbúða næstu árin til að mæta uppsafnaðri þörf fyrir nýbyggingar. Mikilvægast er þó að tryggja að uppbygging sé stöðug til að koma í veg fyrir skaðlegar sveiflur á íbúðamarkaði og í byggingariðnaði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert