Tryggi íbúum líknar- og lífslokameðferð

Starfshópurinn lítur á tillögur sínar sem lið í að jafna …
Starfshópurinn lítur á tillögur sínar sem lið í að jafna aðgengi að almennings að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Veruleg þörf er fyrir að veitt sé bæði líknarmeðferð og lífslokameðferð á heilbrigðisstofnunum á Vestfjörðum, Austurlandi og Norðurlandi. Sérhæfða þjónustu á þessu sviði skortir í umdæmunum og nauðsynlegt er að efla hana. Þetta eru niðurstöður starfshóps sem falið var að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar í umdæmunum þremur.

Megintillögur starfshópsins felast í því að yfirumsjón með samþættingu og uppbyggingu þjónustu á sviði líknar- og lífslokameðferðar á starfssvæði heilbrigðisstofnana Vestfjarða, Norðurlands og Austurlands verði í höndum Sjúkrahússins á Akureyri, gerður verði formlegur samningur milli sjúkrahússins og Heimahlynningar á Akureyri sem eru þungamiðja þjónustunnar og að unnin verði frekari þarfa- og kostnaðargreining fyrir líknar- og lífslokameðferð á starfssvæði stofnananna þriggja.

Starfshópurinn leggur áherslu á að með samstarfi stofnana, teymisvinnu heilbrigðisstarfsfólks og með hagnýtingu tækni á sviði fjarheilbrigðisþjónustu megi tryggja íbúum svæðisins almenna og sérhæfða líknar- og lífslokameðferð.

Tekið er fram í skýrslunni að starfshópurinn líti á tillögur sínar sem lið í því að jafna aðgengi almennings að almennri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu óháð búsetu í samræmi við stefnu stjórnvalda.

Dr. Elísabet Hjörleifsdóttir, formaður starfshópsins kynnti Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra tillögurnar á fundi í velferðarráðuneytinu í dag. Svandís sagði mikilvægt að fá í hendur vandaða vinnu hópsins með tillögum um hvernig megi byggja upp og efla þessa mikilvægu þjónustu á landsbyggðinni. „Nú legg ég áherslu á að taka næstu skref með því að fara vel yfir tillögurnar og skoða hvernig best megi hrinda þeim í framkvæmd til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt,“ sagði ráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert