Haraldur efstur í Mosfellsbæ

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. mbl.is/Golli

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, varð efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fór í gær. Í öðru sæti varð Ásgeir Sveinsson og Kolbrún Þorsteinsdóttir varð í þriðja. Greint er frá niðurstöðum prófkjörsins á Facebook-síðu Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ.

Í fjórða sæti hafnaði Rúnar Bragi Guðlaugsson, í fimmta Arna Hagalínsdóttir og Hafsteinn Pálsson í því sjötta. Helga Jóhannesdóttir varð í sjöunda sæti og Kristín Ýr Pálmarsdóttir í því áttunda. Bera þarf niðurstöður prófkjörs undir fulltrúaráð flokksins í Mosfellsbæ til samþykktar samkvæmt skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert