Laun innan ASÍ hækka afturvirkt

Laun ríkisstarfsmanna innan ASÍ hækka afturvirkt.
Laun ríkisstarfsmanna innan ASÍ hækka afturvirkt. mbl.is/Styrmir Kári

Laun ríkisstarfsmanna innan ASÍ hækka afturvirkt að meðaltali 1,8% frá 1. janúar 2017. Leiðréttingin kemur til útborgunar á flestum stöðum 1. mars. 

Þetta er í fyrst sinn sem ríkisstarfsmenn sem eru í aðildarfélögum ASÍ, þ.e. félagsmenn RSÍ, Samiðnar, VM, SGS og félaganna í Flóabandalaginu fá svokallaða launaskriðstryggingu. Þetta er gert á grundvelli samnings sem ASÍ gerði við ríkið 21. desember 2017 og byggir á rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá október 2015. Þetta er gert til að tryggja að launaskrið á almenna vinnumarkaðnum nýtist líka starfsfólki hjá hinu opinbera.

Tryggingin er mæld út frá launaskriði árin 2013 til 2016 en annað uppgjör verður svo gert fyrir árin 2017 og 2018 og leiðrétt ef tilefni er til. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert