Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvörun vegna yfirvofandi óveðurs á morgun. Farþegar WOW air mega því búast við röskunum á flugáætlun þennan dag og vill flugfélagið því biðja farþega um að fylgjast náið með skilaboðum og tölvupóstum frá flugfélaginu fram að brottför.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þar segir enn fremur, að farþegum sem eigi bókað flug í fyrramálið sé ráðlagt að mæta snemma upp í flugstöð þar sem flug muni taka fyrr af stað en upprunalega hafi verið áætlað.
„Öllum farþegum mun einnig berast tilkynning varðandi nýja brottfarartíma. Innritun í flug opnar á miðnætti fyrir allar morgunbrottfarir.
Farþegum sem eiga bókað flug á morgun er einnig heimilt að gera eina breytingu á bókun sinni og velja sér annan brottfarardag. Til að nýta sér það skal hafa samband við þjónustudeild WOW air með tölvupósti á myflight@wow.is,“ segir í tilkynningu frá WOW air.
Uppfærðar flugupplýsingar er að finna á heimasíðu WOW air.