Fjórir óku á vegrið í hálkunni

Víkurfréttir/Hilmar Bragi Bárðarson

Fjórir ökumenn óku á vegrið á Reykjanesbraut um helgina vegna hálku á brautinni. Einn þeirra var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar en bifreið hans sat föst utan í vegriðinu.

Þá var nokkuð um minni háttar umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum af sömu sökum. Einnig bárust lögreglu nokkur símtöl frá ökumönnum þar sem bílar sátu fastir í snjó. Var þar um erlenda ferðamenn að ræða. Loks var einn ökumaður handtekinn vegna gruns um fíkniefnaakstur og annar vegna gruns um ölvunarakstur, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert