Tók þrjá tíma að hreinsa upp

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins stóð í ströngu við að hreinsa upp eftir heitavatnsleka í kjallara fyrirtækis í nótt. Tók hreinsistarfið um þrjár klukkustundir.

Tilkynnt var um vatnslekann til slökkviliðsins upp úr klukkan 23 í gærkvöldi og lauk hreinsunarstarfinu ekki fyrr en um tvö í nótt. Ekki er vitað hversu mikið tjónið er en málið er komið til tryggingarfélags fyrirtækisins, að sögn varðstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert