Auður nýr framkvæmdastjóri Landverndar

Auður hefur störf þanni 1. maí næstkomandi.
Auður hefur störf þanni 1. maí næstkomandi.

Auður Magnúsdóttir, deildarforseti auðlinda- og umhverfisdeildar Landbúnaðarháskóla Íslands, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Landverndar og mun hún hefja störf þann 1. maí næstkomandi.

Auður tekur við starfinu af Salome Hallfreðsdóttur, en Salome hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra frá því í nóvember síðastliðinn. þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landverndar, tók við embætti umhverfisráðherra Íslands.

Auður er með doktorspróf í lífefnafræði frá Stokkhólmsháskóla/Karolinska Institut og hefur stundað rannsóknir á því sviði. Hún starfaði áður sem deildarstjóri hjá Orf Líftækni og hjá Íslenskri erfðagreiningu. Síðastliðin tvö ár hefur hún gengt starfi deildarforseta Auðlinda- og umhverfisdeildar Landbúnaðarháskóla Íslands. Auður hefur setið í framkvæmdastjórn hjá Orf Líftækni og hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og er formaður Samtaka kvenna í vísindum. Hún hefur sinnt umhverfismálum frá unglingsárum.

Í tilkynningu frá Landvernd segir að samtökin standi á tímamótum þar sem að á næsta ári fagni þau 50 ára afmæli. „Samtökin ætla sér að verða enn öflugri og einlægur málsvari náttúrunnar og markmiðið er að fjölga félagsmönnum svo um munar, enda eru það stuðningsaðilar samtakanna sem tryggja vernd náttúru Íslands og halda umræðu og aðgerðum um umhverfismál á lofti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert