Hvað er líkamsskynjunarröskun? Ef þú viltu fræðast frekar geturðu horft og hlustað beint á erindi Andra Steinþórs Björnssonar sálfræðings sem fjallar um áhrif hugsana um eigið útlit á líðan ungmenna hátíðarsal Háskóla Íslands í dag kl. 12.
„Það er ekki óeðlilegt að við höfum áhuga á útlitsþáttum í eigin fari og annarra. Áhugi á útliti liggur djúpt í mannseðlinu. Talað er um kynval í þróunarlíffræði því við erum ein af þeim tegundum sem notar meðal annars útlitsþætti þegar við veljum okkur maka. Það er innbyggt í okkur. Við fæddumst með þetta miðtaugakerfi og það er ekki okkur að kenna að við höfum þennan áhuga.” Þetta sagði Andri meðal annars í spjalli við mbl.is