Það tók Árna Sæberg ljósmyndara Morgunblaðsins margar tilraunir að ná páskamyndinni sem birtist á forsíðu Morgunblaðsins í dag. Önnur fyrirsætan var á sterum og auk þess uppi á borði í fyrsta sinn.
Árni hefur oft áður fengið það verkefni að taka forsíðumynd fyrir Morgunblaðið um páska. Stundum hefur dóttir hans fengið hlutverk fyrirsætunnar en nú er hún orðin sextán ára og því ákvað Árni að leita á önnur mið.
Í fallegu bjálkahúsi í Kópavoginum vissi hann af stúlku og litlum hundi og ákvað að biðja þau um að sitja fyrir. Það var auðsótt mál og mætti Árni vopnaður myndavélinni, páskablómum og páskaeggi, sem hann hafði fengið að gjöf frá Morgunblaðinu, til myndatökunnar. Fyrirsæturnar tvær voru þó heldur ólíkar í hegðun.
Hin sjö ára gamla Talía Björk Konráðsdóttir var eins og draumur hvers ljósmyndara en hin fyrirsætan, tíkin Mína, var hins vegar á sterum. Sterana hafði hún fengið til að vinna á sýkingu sem hún er að glíma við.
Hundar á sterum geta verið heldur örir og til að róa hana þurfti amma Talíu að halda góðgæti fyrir framan Mínu svo hún myndi horfa beint fram. En Mína hafði aldrei fyrr fengið að vera uppi á borði og flækti það hlutina örlítið. Hún vildi fyrst stökkva niður en með þolinmæði allra viðstaddra tókst þó að fá hana til að sitja kyrra á borðinu.
Til að gera henni myndatökuna bærilegri notaði Árni LED-lýsingu í stað flass og stillti myndavélina á mikinn hraða svo hann tók um 14 myndir á sekúndu.
Útkoman er auðvitað stórglæsileg. Talía brosir sínu blíðasta, nýbúin að missa aðra framtönnina, og Mína horfir stillt og prúð fram fyrir sig.
Hér að neðan gefur að líta nokkrar myndir úr myndatökunni.