Hefja mótun nýsköpunarstefnu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, lagði á síðasta ríkisstjórnarfundi fram tillögu að gerð heildstæðrar nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Kveðið er á um mótun stefnunnar í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og er hún nú formlega hafin. 

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að nýsköpun og hvers konar hagnýting hugvits sé mikilvæg forenda fjölbreytts atvinnulífs, sterkrar samkeppnisstöðu, hagvaxtar og velferðar þjóða.

Í því ljósi hefst vinna við mótun heildstæðrar nýsköpunarstefnu fyrir Ísland til ársins 2030 og verður hún unnin í víðtæku samstarfi stjórnvalda, atvinnulífs og vísinda- og menntasamfélags.

„Fjórða iðnbyltingin er hafin og það er fyrirséð að á næstu árum mun stafræn tækni og sjálfvirkni umbylta atvinnugreinum, hagkerfi, velferð og menntun. Í þessu felast ómæld tækifæri til róttækra breytinga, framfara og aukinna lífsgæða. Að sama skapi  geta þær þjóðir sem ekki ná að hagnýta sér þessar breytingar átt á hættu að dragast verulega aftur úr,“ segir á vef Stjórnarráðsins.

Verkefnið mun byggja á starfi fimm faghópa sem fjalla um eftirfarandi málaflokka.

  1. Nýsköpun í þágu þróunar atvinnulífsins, þ.m.t. matvælaframleiðslu, heilbrigðistækni og menntamála.
  2. Skipulagning stuðningskerfis nýsköpunar, þ.m.t. styrkjakerfi rannsókna og þróunar og stuðningur við sprotafyrirtæki.
  3. Nýsköpun í þágu umhverfisvænna lausna, þ.m.t. orku– og loftslagsmála.
  4. Nýsköpun í opinberum rekstri og einföldun regluverks.
  5. Nýsköpun í heilbrigðismálum og velferðarþjónustu.

Sérstök verkefnastjórn mun halda utan um stefnumótunarvinnuna og verður hún skipuð verkefnisstjórum verkefnanna fimm, auk formanns verkefnisstjórnar sem ráðherra nýsköpunarmála skipar.

Nánar má sjá um verkefnið hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert