12 milljónir safnast í neyðarsöfnun

AFP

Yfir 12 milljónir hafa safnast í  neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Jemen. Þar af söfnuðust um fimm milljónir í skákmaraþoni Hrafns Jökulssonar og Hróksins sem fór fram í Pakkhúsinu um síðustu helgi.

UNICEF á Íslandi hóf neyðarsöfnun fyrir Jemen undir yfirskriftinni „Má ég segja þér soldið?“ síðasta miðvikudag. 

 „Það er ómetanlegt að finna þessa samstöðu og þennan meðbyr í samfélaginu. Við viljum koma fram miklum þökkum til þeirra sem hafa stutt söfnunina með framlögum, með því að mæta á viðburðinn okkar, tefla við Hrafn og styðja málstaðinn með einum eða öðrum hætti,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í fréttatilkynningu.

AFP

„Börn eru búin að þjást í Jemen allt of lengi, þau hafa misst heimili sín og fjölskyldur og eru beinlínis að deyja úr hungri. Þau hafa deilt sögum sínum með okkur og það er skylda okkar að hlusta og hjálpa þeim.“

 Líf barna eru í húfi

Jemen hefur verið lýst sem einu versta landi í heimi til að vera barn. Neyðin er gífurleg og eftir margra ára átök þarfnast næstum hvert einasta barn í Jemen neyðaraðstoðar.  Bara á þessu ári hafa 220 börn látist í átökum og yfir 330 börn slasast alvarlega. Milljónir barna svelta, hafa ekki aðgengi að hreinu drykkjarvatni og látast úr sjúkdómum á borð við kóleru og niðurgangspestir. Börn eiga aldrei sök í stíði en engu að síður eru það þau sem bera mestan skaða af átökunum. „Þó að ástandið virðist yfirþyrmandi megum við ekki gefast upp á meðan líf barna eru í húfi,“ segir Bergsteinn. „UNICEF er á staðnum og hefur náð að veita milljónum barna hjálp síðan átökin brutust út við mjög erfiðar aðstæður. Nú biðlum við til almennings og fyrirtækja á Íslandi að hjálpa okkur að bregðast við neyð barna í Jemen, líf fjölmargra þeirra hanga á bláþræði.“  

Framlögin munu veita börnum í Jemen lífsnauðsynlega hjálp, m.a að meðhöndla börn gegn vannæringu, tryggja vatns- og hreinlætisaðstöðu til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma, bólusetja börn gegn mænusótt, dreifa skólagögnum og setja upp barnvæn svæði þar sem kennsla getur farið fram og hægt er að veita börnum sálræna aðstoð til að vinna úr áföllum sínum, segir ennfremur á vef UNICEF.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert