Umferðaróhapp varð á Kringlumýrarbraut við Borgartún rétt fyrir klukkan 23 í kvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur sent bæði sjúkrabíl og dælubíl á vettvang.
Vaktstjóri hjá Slökkviliðinu segir að ekki sé vitað um hvort slys hafi orðið á fólki en að dælubíll hafi verið sendur til að þrífa upp olíu sem er á veginum.
Ekki fengust frekari upplýsingar um óhappið að svo stöddu.