Grunaður um innbrot í bíla

Lögreglustöðin Hverfisgötu.
Lögreglustöðin Hverfisgötu. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Maður sem er grunaður um að hafa verið að brjótast inn í bíla í Breiðholtinu í nótt var handtekinn skammt frá vettvangi og er vistaður í fangageymslu lögreglunnar. 

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynnt hafi verið um mann sem var að brjótast inn í bíla í Breiðholti upp úr klukkan 1 í nótt. Skömmu síðar var karlmaður handtekinn skammt frá vettvangi sem reyndist ekki vera með íslenska kennitölu og ekki með dvalarleyfi. Hann var því vistaður í fangageymslu og verður mál hans skoðað síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert