Sakfelldur fyrir nektarmynd af fyrrverandi

Héraðsdómur Reykjavíkur veitti manninum þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir myndatökuna …
Héraðsdómur Reykjavíkur veitti manninum þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir myndatökuna og dreifingu myndanna. mbl.is/Ófeigur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á þriðjudag karlmann í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa tekið ljósmynd af fyrrverandi sambýliskonu sinni sof­andi ásamt öðrum karl­manni og dreift henni til þriggja annarra ein­stak­linga á Face­book.

Er maðurinn sakfelldur fyrir stór­felld­ar ærumeiðing­ar í garð konunnar, en í ákæru máls­ins kem­ur fram að hann hafi tekið ljós­mynd á síma sinn af kon­unni hálfnak­inni og karl­mann­in­um nökt­um þar sem þau lágu sof­andi í rúmi. Sendi hann mynd­ina í kjöl­farið á þrjá aðra ein­stak­linga. Er hann sagður með hátt­semi sinni hafa móðgað og smánað kon­una auk þess að særa blygðun­ar­semi henn­ar.

Fann konan minnislykla með myndunum sem m.a. eru sagðar sýna hana og sambýlismanninn fyrrverandi í samförum. Maðurinn játaði hjá lögreglu og fyrir dómi að hafa tekið myndir af konunni, en sagði hana hafi vitað af myndatökunum og verið þeim samþykk. Konan hefur hins vegar neitað því og var það mat dómsins að hún hafi ekki vitað af myndatökunum, enda styðji framburðir vitna sem voru hjá henni skömmu eftir að hún fann minnislyklana, þann framburð hennar. Þykir því sannað að ákærði tók myndirnar án vitneskju hennar. 

Dómurinn er skilorðsbundinn, en manninum er einnig gert að greiða konunni 400.000 kr. í miskabætur, auk greiðslu lög­mannsþókn­un­ar og máls­kostnaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert