„Við römbuðum inn á veitingastað, lögðum þennan fallega íslenska trefil á borðið og fengum ómælda athygli fyrir,“ segir Freyr Ketilsson. Hann og þrír vinir hans gáfu þjóni á veitingastað góða gjöf í morgun en félagarnir ætla að fara á alla leiki Íslands á HM í Rússlandi.
Þeir komu til Moskvu í gærkvöldi og eru strax búnir að finna heimafólk sem mun styðja íslenska liðið. „Þjónninn á veitingastaðnum var það mikill aðdáandi Íslands að hann spurði hvort hann mætti fá trefilinn. Hann hefur verið með hann bundinn um sig síðan, í líklega þrjár klukkustundir,“ segir Freyr.
„Við gáfum honum að sjálfsögðu trefilinn til að hann gæti tekið vel á móti öðrum Íslendingum,“ segir Freyr og bætir við að þjónninn ætli, eins og margir aðrir Rússar, að styðja Ísland.
Fyrsti leikur mótsins er leikinn í dag og segir Freyr að stemningin á Rauða torginu sé mjög góð en þar hefur í allan dag verið fullt af stuðningsmönnum. „Á veitingastaðnum sem við vorum á var fólk frá flestum þátttökuþjóðum og líka Hollendingar,“ segir Freyr og hlær þegar hann er spurður hvort þeir hafi villst en Hollendingar náðu ekki að tryggja sér sæti á HM.
„Þetta er draumi líkast. Það er pínulítið óraunverulegt að litla Ísland skuli vera á meðal þessara stórþjóða og taka þátt í mótinu með öllum bestu knattspyrnumönnum í heimi.“
Freyr og félagar eru bjartsýnir fyrir leikinn gegn Argentínu á laugardag og telja að mikill stuðningur, innfæddra sem og Íslendinga, muni gefa liðinu aukinn kraft. „Við erum sannfærðir um það að Ísland vinni 1:1, ef við getum orðað það svoleiðis.“
Félagarnir skynja að flestir styðji við bakið á íslenska liðinu, nema ef til vill Hollendingar en landsliðið fór illa með þá í undankeppni fyrir EM 2016. „Mögulega hafa Hollendingar eitthvað á móti okkur og kannski Ronaldo. Hann gæti verið vælandi en við látum það ekki á okkur fá!“