Búið er að yfirheyra og sleppa karlmanni sem grunaður er um kynferðisbrot á tjaldsvæðinu í Réttarhvammi á Akureyri á föstudag.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri er málið enn til rannsóknar og ekki hægt að veita frekari upplýsingar að sinni. Málið kom á borð lögreglu klukkan sjö á föstudag.
Líkt og komið hefur fram í fyrri fréttum hefur verið nokkur erill hjá lögreglu á Akureyri vegna Bíladaga sem fara fram í bænum um helgina. Fjórir gistu fangageymslur lögreglu í nótt, tveir þeirra grunaðir um líkamsárás en fórnarlamb árásarinnar, maður á sextugsaldri, fótbrotnaði í árásinni.