Jarðskjálfti í öskju Öræfajökuls

Jarðskjálfti af stærð 2,7 mældist í öskju Öræfajökuls klukkan 23:20 …
Jarðskjálfti af stærð 2,7 mældist í öskju Öræfajökuls klukkan 23:20 í gærkvöldi. mbl.is/RAX

Jarðskjálfti af stærð 2,7 mældist í öskju Öræfajökuls á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni fylgdu nokkrir minni skjálftar í kjölfarið.

Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist í byggð en enginn órói fylgdi.

Hér má sjá yfirlit yfir jarðskjálfta síðustu tvo sólarhringa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert