„Landsmótið á Sauðárkróki var sannkölluð íþróttaveisla. Við tókum stóra ákvörðun um að breyta Landsmótinu sem hafði verið haldið í meira en 100 ár í nánast óbreyttu formi,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Haft er eftir Auði Ingu í fréttatilkynningu að það hafi verið frábært að sjá og heyra viðbrögð fólks við breyttu fyrirkomulagi Landsmótsins.
„Það er alveg ljóst að framtíðin er fólgin í því að vinna frekar með þessar breytingar,“ segir Auður Inga, en Landsmótið hófst á fimmtudag og lauk íþróttaveislunni í dag.
Mótið var opið fyrir alla 18 ára og eldri sem hafa gaman af því að hreyfa sig og stunda íþróttir og þátttakendur gátu valið úr tæplega fjörutíu íþróttagreinum til að taka þátt í.
Rúmlega 1.300 þátttakendur voru skráðir til leiks í ýmsar greinar á Sauðárkróki um helgina og var úr nægu að velja.
Ætla má að nokkur þúsund manns hafi fylgst með þátttakendum og setti mótið mikinn svip á bæjarbraginn á Sauðárkróki meðan á því stóð.
Alla dagana voru íþróttir í boði á daginn og í gærkvöldi var skemmtikvöld með Geirmundi Valtýssyni og Pallaball á eftir sem tókst gríðarlega vel.
Auður segist hæstánægð með það hvernig mótið tókst.
„Við eigum auðvitað eftir að meta mótið og breytinguna á því. En við fyrstu sýn virðast flestir þátttakendur hæstánægðir. Margir voru að taka þátt í íþróttum í fyrsta sinn. Það eru góðar fréttir enda er Landsmótið liður í stefnu UMFÍ að koma til móts við þarfir fólks sem leitar eftir fjölbreyttri hreyfingu,“ segir hún.