Sérstakur hátíðarfundur Alþingis fer fram á Þingvöllum í dag, en þess verður minnst að 100 ár eru liðin frá því að samninganefndir Íslands og Danmerkur undirrituðu samninginn um sambandslögin sem tóku gildi 1. desember 1918, en í honum var kveðið á um að Danmörk og Ísland væru frjáls og fullvalda ríki í sambandi um einn og sama konung.
Á fundinum í dag er eitt mál á dagskrá; tillaga formanna stjórnmálaflokkanna um verkefni í þágu barna og ungmenna og um rannsóknir er stuðli að sjálfbærni auðlinda hafsins og nýtt hafrannsóknaskip.
Búist er við nokkrum þúsundum gesta, en opinn aðgangur er á fundinn, sem hefst klukkan 14. Þó eru ekki gerðar væntingar til fjölmennis á borð við það sem sótti kristnitökuhátíðina heim, segir þjóðgarðsvörður. Þá hafa ferðamenn á Þingvöllum sýnt undirbúningi og efni fundarins töluverðan áhuga.
Útsendinguna má sjá hér að neðan, en hún hófst kl 12:45.