Annie Mist Þórisdóttir er í þriðja sæti í kvennaflokki á heimsleikunum í crossfit eftir fyrsta keppnisdaginn sem lauk í gær. Leikarnir fara fram í Madison í Wisconsin í Bandaríkjunum.
Katrín Tanja Davíðsdóttir er í því sjötta. Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er í tíunda sætinu og Oddrún Eik Gylfadóttir í því 28. Öðrum keppnisdegi lauk í gær með maraþonróðri. Þar endaði Annie Mist í þriðja sæti og Katrín Tanja í því fimmta.
Björgvin Karl Guðmundsson er eftir gærdaginn í áttunda sæti í karlaflokki.
Hér er hægt að fylgjast með leikunum í beinni útsendingu.