Fara á milli bæja í Skaftárhreppi og stela

Lögregla biður alla þá sem kunna að búa yfir upplýsingum …
Lögregla biður alla þá sem kunna að búa yfir upplýsingum um málið að hafa samband. mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú þjófnaðarmál þar sem skipulega virðist gengið til verks. Aðilar á hvítum smábíl hafa farið milli bæja í Landbroti í Skaftárhreppi og bankað upp á. Ef einhver er heima og kemur til dyra segjast þeir vera að leita að gistingu en sé enginn heima við fara þeir inn og láta greipar sópa. Aðallega hefur verið stolið peningum og skartgripum. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Lögregla biður þá sem sem kunna að búa yfir upplýsingum sem gætu komið lögreglu á spor þessara aðila; hvort sem það er lýsing á aðilum, bílnúmer eða hluti úr því, um að senda lögreglu skilaboð í gegnum Facebook eða setja sig í samband við lögreglu gegnum neyðarnúmerið 112.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert