Kanni erlendar viðvaranir vegna skjálfta

Utanríkisráðuneytið vill benda fólki sem hyggur á ferðalög til Indónesíu á að kynna sér viðvaranir utanríkisráðuneyta Norðurlandanna og Bretlands sem eru, að sögn ráðuneytisins, í flestum tilfellum með starfsemi á viðkomandi stöðum og geta því gefið mun ítarlegri og betri viðvaranir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu á vef Stjórnarráðsins.

Margir hafa leitað áhyggjufullir til borgaraþjónustu ráðuneytisins vegna hins stóra jarðskjálfta sem reið yfir eyj­una Lom­bok í Indó­nes­íu á sunnu­dag. 347 manns hið minnsta lét­ust í jarðskjálft­an­um og er eyðileggingin víða algjör. Meira en 70 þúsund manns misstu heimili sín í skjálftanum sem mældist 6,9 stig. 

Sagt er í tilkynningunni að utanríkisráðuneytið gefi sjaldan út ferðaviðvaranir en bendi þess í stað á viðvaranir utanríkisráðuneyta Norðurlandanna og Bretlands.

„Vara stjórnvöld á Norðurlöndum og Bretlandi um þessar mundir sérstaklega við ferðum til Gili-eyja og norðvestanverðrar Lombok-eyju. Þessi svæði, sem eru austur af Balí, urðu illa úti í stóra skjálftanum síðastliðna helgi. Þar fórust á þriðja hundrað manns og mikil eyðilegging varð. Í morgun varð svo stór eftirskjálfti á Lombok. Slíkum skjálftum getur fylgt mikil hætta vegna þess að byggingar, vegir og aðrir innviðir eru veikir fyrir eftir stóru skjálftana. 

Íslendingar á ferðalögum erlendis geta ávallt leitað til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins komi eitthvað upp á. Sendiskrifstofur Íslands og ræðismenn veita líka borgaraþjónustu þegar þess er óskað,“ er meðal þess sem segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. 

Hér er tilkynning ráðuneytisins í heild sinni.

Utanríkisráðuneytið bendir ferðalöngum á að kanna ferðaviðvaranir til Indónesíu vegna …
Utanríkisráðuneytið bendir ferðalöngum á að kanna ferðaviðvaranir til Indónesíu vegna skjálftanna. Mynd/Heimir Bragi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert