Gætu verið ár í að klöppin hrynji

Þessa drónamynd tók Jens Þór Sigurðarson, starfsmaður Landhelgisgæslunnar í gær. …
Þessa drónamynd tók Jens Þór Sigurðarson, starfsmaður Landhelgisgæslunnar í gær. Stefnt er á að mynda klöppina aftur síðar í vikunni. Ljósmynd/Jens Þór Sigurðarson

Ár gætu liðið þar til klöpp á Fagraskógarfjalli, þar sem sprunga myndaðist á dögunum, hrynur. Þetta segir Sveinn Brynjólfsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, í samtali við mbl.is. Ómögulegt sé að segja til um hvenær hún gefur sig.

Stór sprunga hefur myndast inn­an við skriðusárið í Fagra­dals­fjalli í Hít­ar­dal og mun klöppin, sem hún afmarkar, lík­lega falla ofan á fram­hlaups­urðina sem myndaðist þegar skriðan féll, að því er fram kemur í tilkynningu Veðurstofunnar frá í gær.

Sprungan uppgötvaðist um helgina þegar starfsmenn Landhelgisgæslunnar voru við æfingar í grennd við Hítardal. Að sögn Sveins er óvíst hvenær hún myndaðist, en það hefur verið eftir 4. ágúst því þann dag þann dag var flogið yfir svæðið.

Hann ítrekar að fólk ætti ekki að vera í nágrenni við skriðuna. „Það tekur marga mánuði fyrir svæðið að vera öruggt á ný,“ segir hann og bendir á skriðu sem féll í Öskju 2014 en þar hrundi úr sári 

Klöppin mun líklega hrynja ofan á framhlaupsurðina sem myndaðist þegar …
Klöppin mun líklega hrynja ofan á framhlaupsurðina sem myndaðist þegar skriðan féll. Ljósmynd/Mihails Ignats
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert