Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Kambarnir á Hellisheiði verða lokaðir á morgun vegna malbikunarvinnu. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að stefnt er á að malbika um það bil tveggja kílómetra kafla á báðum akreinum í vestur upp Kamba.
Kömbunum verður lokað í austur og vestur á meðan og allri umferð beint um Þrengslaveg. Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli klukkan 7:00 og miðnættis.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.