Undirritaði viðskiptasamninga í Kína

Guðlaugur Þór Þórðarson og Fu Ziying aðstoðarviðskiptaráðherra skrifa undir samninginn.
Guðlaugur Þór Þórðarson og Fu Ziying aðstoðarviðskiptaráðherra skrifa undir samninginn. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra skrifaði í dag undir samkomulag við kínversk stjórnvöld um aukið samstarf á sviði jarðvarma og rafrænna viðskipta.

Þá var hindrunum á lambakjötsútflutningi til Kína rutt úr vegi á fundi utanríkisráðherra með ráðherra tollamála í Kína.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Guðlaugur Þór er í fjögurra daga heimsókn í Kína. Í gær átti hann fundi með varaforseta og utanríkisráðherra Kína en í dag hitti hann aðstoðarviðskiptaráðherra og tollamálaráðherra landsins.

Á fundinum með Fu Ziying aðstoðarviðskiptaráðherra skrifuðu þeir Guðlaugur Þór undir samkomulag um aukna samvinnu á sviði jarðvarma og rafrænna viðskipta. Skipaðir verða vinnuhópar sem eiga að útfæra samkomulagið nánar og er von á kínverskri sendinefnd um rafræn viðskipti til landsins strax í haust.

„Samkomulagið sem við undirrituðum í dag hefur tvímælalaust í för með sér gagnkvæman ávinning því grænir orkugjafar eru forgangsmál í umhverfis- og loftslagsstefnu Kínverja og þar höfum við sannarlega margt fram að færa. Þá er samstarf um rafræn viðskipti mikilvægt fyrir frekari framþróun í viðskiptasambandi þjóðanna en á því sviði standa Kínverjar mjög framarlega,“ sagði Guðlaugur Þór að undirritun lokinni, að því er kemur fram í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert