Var hvorki í belti né barnabílstól

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni sem var að aka frá flugstöðinni með of marga farþega í bílnum um helgina. Í aftursætinu sat móðir undir barni sínu sem þar af leiðandi var ekki í öryggisbelti né barnabílstól.

Ökumaðurinn var sektaður og tveir farþegar fóru úr bílnum og gengu aftur til flugstöðvarinnar. Barnið var sett í barnabílstól sem hafði verið geymdur í farangursrými bifreiðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert