Aðföng hafa, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði tiltekna lotu af Delicata Brasilíuhnetum í 100 gr. pokum vegna þess að í reglubundnu eftirliti greindist sveppaeitrið aflatoxín B1 í hnetunum yfir mörkum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Delicata.
Vöruheiti: Brasilíuhnetur.
Strikanúmer: 5690350050647.
Nettómagn: 100 g.
Best fyrir: 30.04.2019
Framleiðandi: System Frugt A/S, Danmörku.
Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaupa um land allt.
Upplýsingar um sveppaeitrið aflatoxín er að finna á vefsíðu Matvælastofnunar, http://www.mast.is/matvaeli/adskotaefni/sveppaeitur/.
Viðskiptavinum Bónus og Hagkaupa sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.