Sýslumaður sekti vegna heimagistingar

Miðborg Reykjavíkur.
Miðborg Reykjavíkur. mbl.is/Golli

Lagt er til í lagafrumvarpi á samráðsgátt stjórnvalda að sýslumaður geti lagt stjórnvaldssektir á þá sem reka leyfisskylda gististarfsemi án leyfis. Samkvæmt núgildandi löggjöf ber sýslumanni að senda slík brot áfram til viðkomandi lögreglustjóra.

Sýslumaður hefur aftur á móti heimild til að beita einstaklinga stjórnvaldssektum vegna brota á skráningarskyldu heimagistingar.

„Því hefur verið munur á málsmeðferð aðila sem leiðir til þess að búast má við að hærri sekt liggi við því að stunda stunda óskráða heimagistingu en ólöglega rekstrarleyfisskylda starfsemi í atvinnuskyni. Reynslan sýnir að sjaldan eru gefnar út ákærur í slíkum  málum heldur er þeim lokið með lögreglusekt. Markmiðið er að koma í veg fyrir ólíkar niðurstöður vegna sambærilegra brota, flýta málsmeðferð og draga úr kostnaði sem hlýst af formlegri og kostnaðarsamri ákærumeðferð fyrir dómstólum,“ segir í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Einnig er lagt til að sýslumaður fái heimild til að beita stjórnvaldssektum ef aðili með skráða heimagistingu skilar ekki inn nýtingaryfirliti í samræmi við ákvæði laganna. Hingað til hefur hann ekki haft nein úrræði til þess, sem torvaldar eftirlitshlutverk hans, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Í drögunum að frumvarpinu er jafnframt lagt til að skráning heimagistingar verði bundin við bæði þinglýst eignarhald og lögheimili. Samkvæmt núgildandi löggjöf er skráningin aðeins bundin við lögheimili. Með þessari breytingu er markmiðið að koma í veg fyrir lögheimilisskráningar til málamynda.

Umsagnarfrestur vegna lagafrumvarpsins rennur út 24. október og eru umsagnir birtar jafnóðum og þær berast, samkvæmt því sem kemur fram í samráðsgáttinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert