Eftirlit með heimagistingu hert

Margar íbúðir í Reykjavík eru notaðar undir heimagistingu.
Margar íbúðir í Reykjavík eru notaðar undir heimagistingu. mbl.is/​Hari

Alþingi samþykkti í vikunni breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald sem eykur eftirlit sýslumanns með heimagistingum.

Í lögunum eru gerðar tvenns konar breytingar á starfssviði sýslumanns í tengslum við heimagistingu.

Annars vegar varðandi samræmingu á málsmeðferð og ákvörðun sekta milli skráningarskyldra og rekstrarleyfisskyldra aðila vegna leyfisskyldrar gististarfsemi og hins vegar skráningarskyldrar heimagistingar. Í öðru lagi er lögð til breyting varðandi eftirlit með skilum á nýtingaryfirlitum einstaklinga sem leigja út húsnæði sitt og skrá undir heimagistingu.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Kristófer Oliversson, formaður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu (FHG), félagið fagna nýju lögunum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert