Í gærkvöld varð aftanákeyrsla í Njarðvík með þeim afleiðingum að ökumaður steig óvart á bensíngjöfina og hafnaði bíll hans á tveimur kyrrstæðum bílum í bílastæði.
Níu umferðaróhöpp hafa verið skráð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni en frá því er greint í tilkynningu.
Í tveimur óhöppum til viðbótar lentu strætisvagnar og fólksbílar saman. Talsvert tjón varð í óhöppunum en engin alvarleg meiðsl á fólki.
Þá voru fáeinir ökumenn kærðir fyrir hraðakstur og meintan vímuefnaakstur.