Bílvelta í Öxnadal

Lögreglan á Akureyri segir tvo hafa verið flutta á Sjúkrahúsið …
Lögreglan á Akureyri segir tvo hafa verið flutta á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir að bíll valt í Öxnadal. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fólksbíll á leið inn Öxnadal valt eftir að hafa runnið af þjóðveginum vegna hálku rétt fyrir klukkan átta í kvöld.

Lögregla og sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang og voru tveir einstaklingar sem voru í bílnum fluttir til skoðunar á Sjúkrahúsið á Akureyri með minni háttar meiðsl, þetta staðfestir lögreglan á Akureyri.

Lögregla er enn á vettvangi en ekki er talið að tafir séu á umferð vegna atviksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert