Stelpurnar og strákurinn sem undanfarnar vikur hafa verið í námskeiði um sögu Feminismans í Kvennaskólanum biðu Kvennafrídagsins með eftirvæntingu og höfðu gert skilti og boli af tilefninu. Stelpurnar segja jafnöldrur sínar vera áhugasamar um jafnréttisbaráttuna og fylgjast vel með.
mbl.is var í Kvennaskólanum í dag þegar stelpurnar gengu út úr kennslustofunni og rabbaði við nokkrar þeirra um jafnréttisbaráttuna og Kvennafrídaginn.