Tveir menn handteknir í Landsbankanum

Mennirnir voru handteknir við Landsbankann í Borgartúni.
Mennirnir voru handteknir við Landsbankann í Borgartúni. Ljósmynd/Landsbankinn

Lögreglan handtók nú fyrir stuttu tvo karlmenn í útibúi Landsbankans í Borgartúni. Voru mennirnir, sem voru viðskiptavinir bankans, leiddir út í handjárnum, en þeir eru grunaðir um fjármálabrot. Lögreglan staðfestir hins vegar að þeir séu ekki grunaðir um tilraun til ráns.

Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vildi í samtali við mbl.is ekki greina frá því hvaða brot mennirnir væru grunaðir um og vísaði til rannsóknarhagsmuna. Þó gat hann sagt að það tengdist ekki ráni eða hótunum í bankanum sjálfum.

Sagði hann að meintur ólögmætur verknaður hafi hins vegar farið fram í bankanum og staðfesti að um væri að ræða fjármálabrot. Vildi hann ekki greina frá því hvort málið teygði sig til fleiri landa en Íslands, en mennirnir eru báðir erlendir ríkisborgarar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert