Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat kvöldverð með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, í Berlín í gær. Merkel ávarpaði þar gesti alþjóðlegrar ráðstefnu um efnahagsmál á vegum Süddeutsche Zeitung.
Að loknum kvöldverði fundaði Katrín með Merkel þar sem þær ræddu meðal annars stöðuna í þýskum stjórnmálum og EES-samstarfið.
Katrín flutti ávarp á ráðstefnunni ásamt Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands, og Ana Brnabić, forsætisráðherra Serbíu.
Forsætisráðherra fjallaði um þær tækniframfarir sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir og þróunina á Íslandi í þeim málum. Sérstaklega ræddi hún stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla rafræna stjórnsýslu og aukinn stuðning við nýsköpun og þróun.
Þá reifaði hún áhrif tæknibreytinga á menntakerfið og á lýðræðislega umræðu. Hún lagði áherslu á að marka þyrfti stefnu með almannahagsmuni að leiðarljósi í því skyni að tryggja að tæknin nýtist til að styrkja lýðræði, sjálfbærni og jöfnuð, fremur en hið gagnstæða.
Í kjölfarið tók Katrín þátt í pallborðsumræðum ásamt Ratas og Brnabić sem Wolfgang Krach, aðalritstjóri Süddeutsche Zeitung, stýrði.