Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið tilkynningar um rúmlega hundrað innbrot í ökutæki frá því 1. október. Um það bil helmingur þessara innbrota hefur átt sér stað í miðborginni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.
Er brýnt fyrir eigendum og umráðamönnum að ganga tryggilega frá ökutækjum sínum og geyma engin verðmæti í þeim. Einnig er gott að huga að því að leggja bifreiðum í stæðum sem eru með góðri lýsingu sé möguleiki á því. Ökutæki lagt í myrki er auðveldari bráð fyrir þjófa, segir í tilkynningunni.