Umferðarhraði á einbreiðum brúm lækkaður

Um er að ræða um 75 einbreiðar brýr, um helmingur …
Um er að ræða um 75 einbreiðar brýr, um helmingur á hringvegi. Ljósmynd/Vegagerðin

Vegagerðin hefur ákveðið að lækka hámarkshraða í 50 km/klst. við allar einbreiðar brýr á þjóðvegum þar sem umferð er meiri en 300 bílar á dag að jafnaði alla daga ársins (ÁDU).

Um er að ræða um 75 einbreiðar brýr, um helmingur á Hringvegi.

Þá verður viðvörunarskiltum breytt og einnig bætt við undirmerki á ensku  á viðvörunarskiltum. Kostnaður við merkingar er áætlaður um 70-80 milljónir króna. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Nýverið var banaslys við einbreiða brú sem liggur yfir Núpsvötn á Suðausturlandi.

Þar segir ennfremur, að Vegagerðin hafi einnig ákveðið að yfirfara hámarkshraða á þjóðvegum í dreifbýli og breyta honum til lækkunar reynist þess þörf eða fjölga merkingum um leiðbeinandi hraða. Þá verði gerð úttekt á vegriðum á öllum brúm á stofn- og tengivegum. Lagfæringum verði forgangsraðað eftir ástandi brúnna og aðstæðum á hverjum stað eftir því sem svigrúm er í fjárheimildum

Ávallt ber að haga akstri eftir aðstæðum

„Eftir sem áður gildir sú gullvæga regla að ávallt ber að haga akstri eftir aðstæðum,“ segir í tilkynningu.

Jafnframt kemur fram, að heildarfjöldi brúa á þeim þjóðvegum sem teljist til stofn- og tengivega sé 892.

„Af þessum brúm teljast 423 vera einbreiðar, þ.e. 5 metrar að breidd eða mjórri.Mikil áhersla er lögð á að fækka einbreiðum brúm en ljóst er að langan tíma mun taka að útrýma þeim.  Á undanförnum þremur árum hefur staðið yfir átak varðandi bættar merkingar við einbreiðar brýr, sem m.a. felst í uppsetningu blikkljósa, og hafa nú allar brýr á Hringvegi verið merktar á sambærilegan hátt og sama gildir um nokkrar brýr utan Hringvegar,“ segir Vegagerðin.

Byrja þar sem umferðin er mest

Einnig segir, að hingað til hafi leyfilegur hámarkshraði við einbreiðar brýr einungis verið lækkaður í undantekningartilvikum.  Jafnframt verði viðvörunarskiltum við brýrnar breytt þannig að merkið A14.11 Vegur mjókkar verður sett í stað A99.11 (Önnur hætta). Auk þess verði undirmerki sem nú er tengt viðvörunarskiltunum endurskoðað þannig að þar verði einnig enskur texti. Alls er um að ræða 77 brýr þar af eru 37 á Hringvegi. 

„Byrjað verður á Hringvegi meðfram suðurströndinni að Jökulsárlóni en þar eru jafnframt þær einbreiðu brýr sem hafa hvað mesta umferð.

Vegagerðin mun yfirfara leyfilegan hámarkshraða á þjóðvegum í dreifbýli, með tilliti til gæða veglínu og annarra aðstæðna.  Að þessari greiningu lokinni mun verða metið hvort ástæða sé til að breyta leyfilegum hámarkshraða á tilteknum köflum þjóðvegakerfisins eða fjölga merkjum sem sýna leiðbeinandi hraða.

Hafin verður úttekt á ástandi vegriða á öllum brúm (einbreiðum og tvíbreiðum) á stofn- og tengivegum og í kjölfarið gerð áætlun um nauðsynlegar lagfæringar,  sem unnið verður að í áföngum, miðað við forgangsröðun sem mun m.a. byggjast á ástandi vegbúnaðar og umferð,“ segir Vegagerðin ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert