Eiginkonurnar létust í slysinu

Tvær konur og ungt barn létust í banaslysinu við Núpsvötn.
Tvær konur og ungt barn létust í banaslysinu við Núpsvötn. mbl.is/Sverrir

Ferðamennirnir sem lentu í umferðarslysinu við Núpsvötn í morgun voru allir breskir ríkisborgarar fæddir á Indlandi. Tveir bræður voru í bílnum og fjölskyldur þeirra. Eiginkonur þeirra létust báðar og eitt mjög ungt barn. Þetta staðfestir fulltrúi indverska sendiráðsins í samtali við mbl.is.

Indverska sendiráðið hefur haft samband við þriðja bróðurinn sem búsettur er í Bretlandi. Líklegt er að hann komi til Íslands fljótlega. Armstrong Changsang, sendiherra Indlands á Íslandi, heimsótti spítalann í dag og ræddi við lækna og sjúkrahúsprest.

Talsmaður breska sendiráðsins á Íslandi staðfestir, í samtali við mbl.is, að um ferðamennirnir sem lentu í slysinu væru breskir ríkisborgarar og að sendiráðið myndi veita fjölskyldum þeirra aðstoð og upplýsingar.

„Við erum að aðstoða fjölskyldur breskra ríkisborgara sem lentu í bílslysinu og erum í stöðugu sambandi við stjórnvöld á Íslandi,“ segir í skriflegu svari frá skrifstofu utanríkismála og breska samveldisins í London til mbl.is.

Ekki er vitað hversu al­var­lega slasaðir þeir eru sem voru flutt­ir á sjúkra­hús. Beita þurfti klipp­um til að ná þeim úr bíl­flak­inu, sem var jeppi af gerðinni Toyota Landcruiser. Vitað er að meðal þeirra eru tveir fullorðnir bræður og tvö börn á aldrinum 7 til 9 ára.

Lög­regl­an á Suður­landi ann­ast rann­sókn máls­ins með aðstoð tækni­deild­ar lög­reglu og annarra deilda lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu

Fréttin var uppfærð kl. 18:46.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert