Viðbúnaður vegna gangtruflana í 9.000 tonna gámaflutningaskipi

Landhelgisgæslan setti meðal annars varðskip í viðbragðsstöðu vegna gámaflutningaskipsins.
Landhelgisgæslan setti meðal annars varðskip í viðbragðsstöðu vegna gámaflutningaskipsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landhelgisgæslan setti varðskip, þyrlu og björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum í viðbragðsstöðu laust eftir hádegi í dag vegna gangtruflana í 9.000 tonna gámaflutningaskipi.

Skipið var þá statt úti fyrir Reykjanesskaga og var næst landi um fjórar sjómílur SSA af Reykjanestá.

Landhelgisgæslan vildi hafa varann á, því búist var við að vindur myndi snúast í suðvestanátt síðdegis, að því er Gæslan greinir frá.

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar beið í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli og varðskipið Þór sigldi þegar í stað í átt að gámaflutningaskipinu en varðskipið var statt við Suðausturland. Þá var varðskipið Týr gert tilbúið til að halda af stað frá Reykjavík.

Á þriðja tímanum í dag fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar þær upplýsingar frá áhöfn skipsins að hætta á frekari gangtruflunum væri liðin hjá. Viðbúnaðarstig var þá lækkað.

Skipið er nú komið fyrir Garðskaga og er væntanlegt til Reykjavíkur síðdegis, að sögn Landhelgisgæslunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert