Sindri mun líklega áfrýja

Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um það hvort dómi …
Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um það hvort dómi Sindra Þórs verði áfrýjað til Landsréttar. mbl.is/Eggert

Þorgils Þorgilsson, verjandi Sindra Þórs Stefánssonar, sem hlaut í gær fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir innbrot í fjögur gagnaver og tilraunir til tveggja innbrota til viðbótar, segir að líklega verði niðurstöðunni áfrýjað. Ekki hefur þó verið tekin endanleg ákvörðun um áfrýjun.

„Þetta er langur dómur, mikið að fara yfir,“ segir Þorgils í samtali við mbl.is, en í dómnum er því algjörlega vísað á bug að skýringar Sindra, um að erlendur fjárfestir sem hann sjálfur óttist hafi lagt á ráðin með honum um innbrotin, haldi vatni.

Auk Sindra var Matth­ías Jón Karls­son dæmd­ur í tveggja og hálfs árs fang­elsi og Hafþór Logi Hlyns­son í tutt­ugu mánaða fang­elsi. Aðrir sak­born­ing­ar fengu væg­ari dóm. Öllum sak­born­ing­um var gert að greiða Advania rúm­ar 33 millj­ón­ir króna í skaðabæt­ur.

Aðspurður hvort það séu einhver atriði í niðurstöðu héraðsdóms sem hann setji spurningarmerki við segir Þorgils að hann gæti verið í tuttugu mínútur í símanum við blaðamann ef hann ætti að fara út í þau efni.

„Ég er ekkert sammála öllu sem þarna kemur fram, en það er kannski ekkert sem ég get gefið út núna,“ segir Þorgils.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert