Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, vill að boðað verði til flokksráðsfundar eins fljótt og auðið er til þess að fara yfir stöðu mála vegna Klaustursmálsins. Hann segist ekki vera á leiðinni úr Miðflokknum.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu hans sem birtist á Vísi og RÚV.
„Mér finnst ekki rétt að þeir félagar mínir í þingflokknum sem stigu tímabundið til hliðar og sneru síðan til þingstarfa sinna á nýjan leik gangi að óbreyttu fyrirkomulagi á [sic] trúnaðarstörfum sínum fyrir flokkinn vísu[m],“ segir hann í yfirlýsingu sinni og á þar við Gunnar Braga Sveinsson og Bergþór Ólason.
Hann hefur komið skoðun sinni á framfæri við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokksins, og telur að stokka þurfi upp spilin í verkaskiptingu þingmanna eftir því sem þurfa þykir.
Til þess segist hann hafa breiðan stuðning í sínu pólitíska baklandi.
Tilkynningin í heild sinni:
„Þessa dagana velta ýmsir fjölmiðlar því fyrir sér hvort ég hyggist segja mig úr lögum við þingflokk Miðflokksins og sé jafnvel á leið yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Af því tilefni vil ég koma eftirgreindu með skýrum hætti á framfæri:
Mér finnst ekki rétt að þeir félagar mínir í þingflokknum sem stigu tímabundið til hliðar og sneru síðan til þingstarfa sinna á nýjan leik gangi að óbreyttu fyrirkomulagi á [sic] trúnaðarstörfum sínum fyrir flokkinn vísu[m]. Ég hef komið þeirri skoðun minni á framfæri við formann Miðflokksins að ég telji rétt að boða til flokksráðsfundar eins fljótt og auðið er til þess að fara yfir stöðuna og stokka m.a. upp spilin í verkaskiptingu þingmanna eftir því sem þurfa þykir.
Ég er ekki á leiðinni úr þingflokknum. Ég er þar af leiðandi heldur ekki á leið yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Ég geri hins vegar kröfu um ákveðna uppstokkun og til þess hef ég breiðan stuðning í pólitísku baklandi mínu og einnig hjá félögum mínum í Miðflokknum víðsvegar um landið.“