Hætti að láta undan frekjukallapólitík

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG. mbl.is/Hari

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG, sagði að núna væri vandræðalegt að vera íslenskur þingmaður erlendis. „Þar sem kynjajafnrétti ber á góma spyr fólk um Klaustursmálið,“ sagði Rósa sem ræddi, líkt og Birgir Þórarinsson, skýrslu Evrópuráðsins um kvenfyrirlitningu, kynbundið áreiti og kynferðislegt ofbeldi.

„Erlendir ráðherrar, þingmenn annarra þjóðþinga og starfsfólk Evrópuráðsþingsins spyr allt um þetta mál, enda vant því að Ísland sé í fararbroddi þegar kemur að jafnréttismálum,“ sagði Rósa.

Hún sagði að áður hafi verið litið til íslenska þjóðþingsins sem fyrirmyndar, enda vöktu vöktu viðbrögð Alþingis við #metoo mikla athygli erlendis. Þá hafi verið gott að vera þingmaður Íslands og geta sagt frá Barbershop-deginum og uppfærslu á siðareglunum.

Orðspor okkar þegar kemur að jafnréttismálum, okkar helsta stolt í alþjóðasamstarfi, er í mikilli hættu. Þess vegna er dapurlegt að hér skuli viðbrögð við Klaustursmálinu flækt í lagaflækjur sem, undarlegt nokk, þjóna oftast hagsmunum þeirra sem viðhafa kvenfyrirlitningu eða setja málið í fangið á minni hluta Alþingis,“ sagði Rósa.

Hún sagði að þetta væri mál sem yrði að leysa. Vilji þjóðar og þings sé skýr. „Allir viðstaddir þingmenn studdu breytingar á siðareglum þingmanna sem hnykktu á reglunum vegna #metoo. Markmiðið með þeim breytingum var að gera fólki kleift að sinna starfi sínu án þess að eiga á hættu að þurfa að þola kynferðislega áreitni, og stuðla þannig að öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi.

Hún hvatti þingmenn til að rifja upp hvað var samþykkt og láta ekki eins og ekkert hafi gerst. Annars sé ekkert að marka ályktanirnar. „Það er kominn tími til að viðbrögð Alþingis verði afdráttarlausari og að Alþingi taki skýra afstöðu gegn kvenfyrirlitningu og með þeim sem fyrir henni verða. Það er kominn tími til að hætta að draga málið í pólitíska dilka eða láta undan frekjukallapólitík. Virðing Alþingis er undir,“ sagði Rósa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert